1966–2026
Saga ljósmyndastofunnar
– 60 ár
Minningar íslenskra fjölskyldna, varðveittar frá 1966. Myndasafn sem tengir saman fólkið okkar og stundirnar sem skipta máli.
MYNDASAFN
Frá 196660 ár af fjölskylduminningum.
MYNDATÖKUR
Um 58.600Myndatökur af íslenskum fjölskyldum.
LJÓSMYNDIR
Um 2 milljónirLjósmynda, varlega áætlað.
Saga varðveitt í ljósmyndum.
Fólkið, svipbrigðin og stundirnar sem við viljum muna. Í myndasafni ljósmyndastofunnar eru varðveittar minningar íslenskra fjölskyldna allt frá 1966.
Árið 2026 spannar safnið 60 ár og telur nú um 58.600 myndatökur — varlega áætlað um tvær milljónir ljósmynda. Á bak við hverja myndatöku er persónuleg saga sem hefur gildi fyrir fólkið á myndunum og fjölskyldur þess.
Má panta nýjar myndir úr eldri myndatöku?
Já. Hægt er að panta nýjar myndir úr öllum myndatökum í safninu, allt frá 1966. Hafðu samband við okkur til að spyrjast fyrir um myndatökuna sem þú leitar að.
Hjálpaðu okkur að finna myndatökuna.
Sendu þær upplýsingar sem þú hefur. Þú þarft ekki að muna allt nákvæmlega til að hafa samband.
1. Hverjir voru á myndunum?
Nafn eða nöfn þeirra sem komu í myndatökuna.
2. Hvenær var myndatakan?
Ártal eða áætlað tímabil og tilefnið, ef þú manst það.
3. Ertu með númer eða gamla mynd?
Myndatökunúmer getur hjálpað. Ef þú átt eldri mynd eða umbúðir geturðu nefnt það í skilaboðunum.
Við förum yfir fyrirspurnina og ræðum við þig um næstu skref, útfærslur og verð.
Gömul minning. Nýr staður á heimilinu.
Kannski leitarðu að mynd fyrir heimilið, gjöf eða til að varðveita með fjölskyldumyndunum. Við finnum í sameiningu það sem þú leitar að og langar að hafa á þínu heimili.
Það eru ótal möguleikar á að vinna fallegar og vandaðar ljósmyndir. Við förum yfir það sem hentar myndinni og óskunum þínum.
