Myndirnar á heimilinu

Persónulegar minningar sem fá sinn stað. Í albúmi, á veggnum eða sem gjöf til einhvers sem þér þykir vænt um.

Sýnishorn – Myndirnar á heimilinu
Forsíða/ Myndatökurnar okkar/ Myndirnar á heimilinu

Hvað langar þig að gera við myndirnar?

Í skoðunartímanum förum við saman yfir þær myndir sem þér líst best á og finnum hvernig best er að vinna þær fyrir þig — hvaða stærðir, uppsetning og frágangur henta. Við finnum í sameiningu það sem þú leitar að og langar að hafa á þínu heimili.

Það eru ótal möguleikar á að vinna fallegar og vandaðar ljósmyndir. Hér sérðu nokkra þeirra og verð til viðmiðunar.

Nærmynd af síðum, áferð og bindingu ljósmyndaalbúms

Albúm

Minningar til að fletta. Veldu uppáhaldsmyndirnar og varðveittu þær saman í albúmi.

Frá 19.900 kr.

Lítið albúm með 6 myndum.
  • Stórt albúm frá 29.900 kr. með 6 myndum
  • Premium frá 39.900 kr. með 6 myndum og hnotufronti
  • Fleiri myndum má bæta við
Fá ráðgjöf um albúm ↗
Nærmyndir af svörtum, hvítum, viðarlitum, gull- og silfurlitum rammalistum

Innrammaðar myndir

Ramminn er hluti af myndinni. Við hjálpum þér að velja stærð, karton og ramma sem henta heimilinu.

Frá 10.980 kr.

10 × 18 cm ljósmynd með ramma.
  • Svart, hvítt, eik, gull og silfur
  • Fleiri stærðir og útfærslur í boði
  • Verð fer eftir stærð og rammavali
Fá ráðgjöf um innrammaðar myndir ↗
Strigamyndir og frágangur á blindramma

Strigamyndir

Mynd með áferð og hlýju. Striginn er strekktur á blindramma og tilbúinn að fara á vegginn.

Frá 17.480 kr.

15 × 20 cm strigamynd á blindramma.
  • 20 × 25 cm: 28.890 kr.
  • 30 × 40 cm: 39.980 kr.
  • Stakar myndir eða nokkrar saman
Fá ráðgjöf um strigamyndir ↗
Myndasyrpur í römmum á vegg í stofu

Myndasyrpur

Nokkur svipbrigði, ein heild. Veldu myndir sem segja sögu saman í einum ramma.

Frá 30.890 kr.

3 myndir, 20 × 20 cm myndflötur í 30 × 30 cm ramma.
  • Rammi innifalinn
  • Uppsetning eftir myndunum sem þú velur
  • Fleiri stærðir og myndafjöldi í boði
Fá ráðgjöf um myndasyrpur ↗
Ljósmyndir í ólíkum stærðum sýndar saman á vegg

Stakar stækkanir

Uppáhaldsmyndin þín prentuð og unnin af alúð. Til að varðveita, gefa eða velja ramma fyrir síðar.

Frá 5.990 kr.

10 × 18 cm ljósmynd án ramma.
  • 13 × 18 cm án ramma: 8.490 kr.
  • 20 × 25 cm án ramma: 17.900 kr.
  • Rammi valinn og verðlagður sérstaklega
Fá ráðgjöf um stakar stækkanir ↗
USB-minni fyrir afhendingu stafrænna ljósmynda

Stafrænar myndir

Myndirnar með þér. Veldu prentgæði með prentleyfi eða skjágæði til að skoða og deila.

Frá 12.900 kr.

Ein mynd í prentgæðum með prentleyfi, afhent á USB.
  • Skjágæði: 15 myndir frá 29.900 kr.
  • Með albúmi: allar myndir albúmsins í skjágæðum á USB, 12.500 kr.
Fá ráðgjöf um stafrænar myndir ↗
Frá-verð miðast við stærðina og fráganginn sem tilgreind eru við hverja vöru. Myndatökugjald er greitt sérstaklega. Endanlegt verð fer eftir stærð, myndafjölda og útfærslu.

Sjáðu myndirnar á þínum vegg.

Settu A4-blað á vegginn og taktu mynd þannig að umhverfið sjáist líka. Sendu okkur myndina og við getum sýnt þér tillögu að stærð og uppsetningu.

Fá aðstoð við uppsetningu ↗

Fleiri myndir, hver í sínum ramma.

Rammasett geta tengt saman minningar úr ólíkum myndatökum. Við hjálpum þér að velja stærðir og röðun. Verð eftir fjölda, stærðum og frágangi.

Innrammaðar fjölskyldumyndir raðaðar saman í heimilisrými

1966–2026 · 60 ár

Minningarnar eru líka í myndasafninu.

Saga ljósmyndastofunnar – 60 ár ↗

Ljósmyndastofan varðveitir myndasafn allt frá 1966 — um 58.600 myndatökur og varlega áætlað um tvær milljónir ljósmynda af íslenskum fjölskyldum.

Hægt er að panta nýjar myndir úr öllum myndatökum í safninu. Hafðu samband og segðu okkur hverjir voru í myndatökunni og hvenær hún fór fram, ef þú veist það.

Spyrjast fyrir um eldri myndir ↗

Að varðveita minningarnar.

Vel frágengin ljósmynd á að fá að fylgja ykkur lengi. Nokkur einföld atriði hjálpa til við að fara vel með myndirnar.

Ljós, hiti og raki

Veldu stað þar sem sólin skín ekki beint á myndina. Forðastu raka og miklar hita- eða rakabreytingar, til dæmis við ofna eða í röku geymslurými.

Rammar og strigi

Rykaðu varlega með mjúkum, þurrum klút. Úðaðu aldrei hreinsiefni beint á ramma eða mynd. Strigamyndir skal ekki bleyta eða nudda.

Albúm og lausar myndir

Flettu með hreinum, þurrum höndum og taktu um brúnir lausra mynda. Geymdu albúm á þurrum stað og lausar myndir í umbúðum sem ætlaðar eru til varðveislu ljósmynda.

Stafrænu myndirnar

Afritaðu myndirnar af USB-minninu og geymdu fleiri en eitt afrit, á aðskildum stöðum. Athugaðu öðru hverju að afritin opnist. USB-minni á ekki að vera eina eintakið.

Ertu í vafa um þrif, geymslu eða skemmda mynd? Hafðu samband áður en þú reynir að laga hana.