Myndatökurnar okkar

Einfalt að byrja. Veljum tíma sem hentar verkefninu og myndir sem fá að fylgja ykkur.

Forsíða/ Myndatökurnar okkar

Venjuleg eða aðeins meiri myndataka?

Lengd myndatökunnar fer eftir eðli og umfangi verkefnisins. Við tökum mið af fólkinu, börnunum og óskunum sem koma upp.

Meira svigrúm

60 mínútna myndataka Aðeins meiri myndataka

39.900 kr.

Fyrir meira umfang og rýmri tíma í myndatökunni.

  • Myndataka á stofunni
  • Myndasíða til skoðunar
  • Skoðunartími með ljósmyndara
  • Ein stækkun í stærð 20 × 25 cm fylgir
Velja tilefni ↓

Hvað er að gerast hjá ykkur?

Veldu tilefnið til að sjá verð, upplýsingar og viðeigandi sýnishorn.

Stórfjölskyldan — allir saman.

90 mínútur · 49.900 kr. · 20 × 30 cm mynd í ramma eða strigamynd fylgir.

Skoða fjölskyldumyndatökur ↗

Myndir sem verða hluti af heimilinu.

Fjölskyldumyndir í eikarrömmum á vegg í stofu Skoða ljósmyndastofuna ↗

Augnmyndir.

Litirnir og mynstrið í auganu verða að persónulegri mynd. Eitt auga 9.990 kr.; hvert viðbótarauga innan fjölskyldunnar 4.990 kr.

Skoða augnmyndir ↗

Myndasyrpa – myndataka.

69.900 kr. · Ljósmyndarinn velur 9 myndir í ramma. 15 myndir á USB í skjágæðum fylgja.

Skoða myndasyrpu – myndatöku ↗

Passamyndir, félagsmyndir og smámyndataka.

15 mínútur · Oddfellow / frímúrar · Passamyndir

Skoða verð og upplýsingar ↗

Frá myndatöku að mynd á heimilinu.

1. Við finnum tíma

Segðu okkur frá tilefninu og við finnum myndatöku sem hentar.

2. Þú skoðar myndirnar

Með 30 og 60 mínútna myndatöku fylgja myndasíða og skoðunartími með ljósmyndara.

3. Við göngum frá valinu

Við förum saman yfir þær myndir sem þér líst best á og finnum stærðir og frágang fyrir heimilið þitt.